miðvikudagur, maí 21, 2003

Það kom að því gott fólk!

Já!!! það kom að því =) Það skrifaði einhver í gestabókina mína =) Ég er SVOOO hamingjusöm. Ég vil þakka henni Önnu fyrir að heiðra mig, bæði með nærveru sinni og síðan líka með því að bæta mér inn á bloggið sitt. Mér líður bara eins og e-m VIP héddna.... Síðan skrifaði Bensi loksins líka í gestabókina (eftir að ég var búin að snúa pínulítið uppá handlegginn á honum) og hann hefur aldrei átt erfitt með að tjá sig blessaður drengurinn þótt það sem hann skrifi meiki aldrei sens....nokkurn tíman.... En hvað um það, ég vil síðan líka vekja athygli á þessu litla sæta myndaalbúmi sem ég skellti hérna til hliðar. Ég á reyndar svo hræðilega mykið af myndum að þetta litla albúm er náttla engan vegin nóg þannig að ef einhver veit um leið til að koma fleiri myndum á vefin (án þess að þurfa að greiða $ 19,99 á mánuði) þá væru þær upplýsingar vel þeggnar.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim