miðvikudagur, maí 21, 2003

Það kom að því gott fólk!

Já!!! það kom að því =) Það skrifaði einhver í gestabókina mína =) Ég er SVOOO hamingjusöm. Ég vil þakka henni Önnu fyrir að heiðra mig, bæði með nærveru sinni og síðan líka með því að bæta mér inn á bloggið sitt. Mér líður bara eins og e-m VIP héddna.... Síðan skrifaði Bensi loksins líka í gestabókina (eftir að ég var búin að snúa pínulítið uppá handlegginn á honum) og hann hefur aldrei átt erfitt með að tjá sig blessaður drengurinn þótt það sem hann skrifi meiki aldrei sens....nokkurn tíman.... En hvað um það, ég vil síðan líka vekja athygli á þessu litla sæta myndaalbúmi sem ég skellti hérna til hliðar. Ég á reyndar svo hræðilega mykið af myndum að þetta litla albúm er náttla engan vegin nóg þannig að ef einhver veit um leið til að koma fleiri myndum á vefin (án þess að þurfa að greiða $ 19,99 á mánuði) þá væru þær upplýsingar vel þeggnar.

þriðjudagur, maí 20, 2003

Um leið og ég vil þakka henni Lilju fyrir að benda mér á að orðið sem um ræðir hér að neðan er afþreying þá vil ég benda ykkur hinum á að það DREPUR YKKUR EKKI AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA MÍNA !!! Annars þá var alveg frábært að heyra í henni Lilju. Hún var bara hress og að verða búin í prófum. Þeir sem vilja nálgast hana er bent á bloggið hennar. Síðan sendi hún mér urlið á myndaalbúminu sínu sem sýnir að það er aldrei leiðinleg stund þegar hún Lilja er annars vegar =) Ég komst meira að segja að því að við eigum eins bíl, nema minn er rauður og hennar grænn. ER það tilviljun.... duuuuuudurummdumm.... :þ

mánudagur, maí 19, 2003

Batman.is - afþreyjingarvefur eða 5 flokks klámbúlla?
Btw, ef einhver getur sagt mér hvernig í helv....maður stafar afþreyjing/afþreyging/afþreiging....þá væri það vel þegið




OK, nú langar mig soldið til að tjá mig um batman og tilveruna. Ég hef tekið eftir því að batman er orðin talsvert vinsælli en tilveran og langar mig aðeins til að greina ástæður þess. Í grófum dráttum er þetta sami vefurinn. Þ.e. samansafn af akkúratt tilgangslausu drasli (sem ég er ekki að gagnrýna í ljósi þess hvað mér finnst tilgangsleysi mikilvægur þáttur í lífinu (nú var ég næstum búin að segja tilverunni :þ )) En hverjar eru síðan ástæðurnar fyrir þessum gífurlegu fylgisbreytingum? Já það er nú s.s. ekkert dularfullt við það. Auðvitað dettur einhverjum strax í hug að tilveran er komin með þess óþolandi popupp glugga á hvern link sem óneitanlega hefur mikið að segja. En þó er helsta ástæðan sú að tilveran er náttla bara samansafn af drasli með klámi inn á milli en batman er ekkert nema samansafn af klámi með e-u drasli inn á milli. Það er í raun reiginmunur þarna á því að það selur ekkert jafnmikið í þessum heimi í dag og einmitt klám (og megrunarvörur). Þess vegna er tilvalið að setja eins mikið af klámi á vefinn þinn og þú mögulega finnur ef þú vilt að hann verði mikið sóttur. En athugaðu, að það segir ekkert um hvort það sé eitthvað varið í hann...eða þig...eins og tilfellið er með batman.